Meðmæli


Húðsmyrsl


Dýralæknirinn Sigurjón Pálmi Einarsson, Sissó, rekur dýraspítala í Svíþjóð sem sérhæfir sig í meðhöndlun hrossa. Sissó tók þátt í að þróa smyrslið og hefur gert ýmsar kannanir á virkni þess.  Hann notar smyrslið mikið í sínu starfi og er hæstánægður með árangurinn.„Hudsalva frá Gandi er græðandi og gott smyrsl til daglegra nota á sár, múkk eða sumarexcem hjá hestum. Smyrslið flýtir því að sár lokist og mýkir um leið upp húðina í kringum sárið. Smyrsl sem ætti að vera til í hverju hesthúsi.“
Sigurjón Pálmi Einarsson (Sissó), dýralæknir með sérhæfingu í meðhöndlun hrossa.

"Við höfum notað Húðsmyrsl með frábærum árangri og við mælum eindregið með því. Okkar reynsla sannaði gæði húðsmyrslisins þegar við notuðum það á mikið slasaðan hest. Hesturinn hætti strax að sleikja sárin þegar hann var laus við flugur og kláða, og sárið tók að gróa. Húðsmyrslið flýtti strax fyrir bata og bætti líðan hestsins, svo mikið er víst."
Sigurborg Á.Jónsdóttir og Jón Ólafssonhrossaræktendur á Báreksstöðum

"Ég hef notað Húðsmyrsl á ýmsar gerðir sára á hestum, sauðfé og fólki með frábærum árangri."
Eggert Pálsson, Bjargshóli

" Gandur er undra smyrsli, með notkun þess þá gróa sár hratt og örvefur helst mjúkur. Einnig hef ég notað smyrslið á holdhnjóska með mjög góðum árangri. Ég á alltaf eina túpu af Gandri bæði heima og í hesthúsinu."
Anna Berg Samúelsdóttir, hestakona og hestanuddari

Leðurfeiti

"Á verkstæðinu hjá okkur notum við leðurfeitina frá Gandi og mælum hiklaust með henni."
Guðmundur Árnason, söðlasmíðameistari hjá Baldvin og Þorvaldi ehf

"Leðurfeitin er einstök hágæða leðurfeiti sem ég hef notað með góðum árangri á allt mitt leður, reiðtygi, skó og fleira."
Þórarinn Eymundsson, tamningameistari og reiðkennari.

Hælabót

"Hælabót hefur reynst mjög vel á sprungna hæla og þurra fætur. Þeir einstaklingar og þær fótaaðgerðastofur sem þegar eru byrjaðar að nota það gefa smyrslinu góða umsögn og mæla með notkun þess. ”Ég hef unnið með Hælabót í um eitt ár og bæði ég og viðskipavinir mínir erum mjög ánægð með árangurinn af Hælabótinni frá Gandi."
Hjördís Anna Helgadóttir, fótaaðgerðafræðingur

 

Sárabót

"Ég notaði Sárabót á mjög slæm excem sár sem ég fékk á hendurnar en hafði áður reynt allt sem mér var ráðlagt. Sárabótin virkaði og ég horfði á sárin gróa á undraverðum hraða."
Ágúst Birgisson, Reykjavík

"Ég hef mjög góða reynslu af notkun á Sárabót á þurrar og sprungnar hendur, græðir sár."
Agnar Jónsson, skeifnasmiður